Færsluflokkur: Bloggar

Heillandi söngkona.

Barbra Streisand leikkonu og söngvara öðlaðist þá upphefð nýverið að gerð hefur verið leikfangadúkka í hennar "mynd". Sem sést hér neðar á síðunni.

Ég hef alla tíð haldið mikið upp á Streisand bæði sem gamanleikkonu en ekki síst sem söngkonu.

Hún hefur þessa mjúku, seiðandi en jafnframt sterku rödd þegar það á við. Rödd sem hefur alla tíð fallið vel að mínum eyrum.

Mér hefur alla tíð fundist hún afskaplega aðlaðandi kona, og er ekki frá því að ég hafi verið hreinlega skotin í henni hér á yngri árum.

En Streisand hefur nú ekki verið talin fegurðardrottning hingað til, orðin "fallega ljót" heyrðist oft sagt um hana. En í mínum augum hefur hún ávallt verið afskaplega heillandi kona.

2BS4      BSMG%20home%20main


Streisand sá lokaeintakið af dúkkunni í spjallþættinum hjá Oprahu Winfrey og var ekki alveg ánægð með útkomuna.

Get ég alveg tekið undir þau orð hennar. Þó Streisand sé með stórt nef af kvenmanni að vera, þá er það ekki svona þykkt og rúnnað eins og á dúkkunni né svona svona breiðleit í andliti, helgast kanski af því að munnur hennar er ekki hafður nógu stór, ekki alveg sáttur við augun heldur.

En Streisand er svipsterk kona, þannig að hún þekkist af dúkkumyndinni, Það er ekki spurning. En hefði mátt vanda örlítið betur til verks.

 


mbl.is Leikur sér að dúkkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stakk barn í brjóstið

Lögreglan á Suðurnesjum handtók 22 ára gamla konu í dag sem grunuð erum að hafa veitt fimm ára gamalli stúlku áverka með eggvopni. Heimildir DV.is herma að konan hafi komið að húsinu í morgun, bankað upp á og litla stúlkan hafi komið til dyra. Fyrirvaralaust hafi konan stungið hana í brjóstið.

Hvað er hægt að segja um svona verknað ? Maður verður bara orðlaus yfir þessari villimennsku konunnar.

Er hún hreinlega trufluð á geði ?...var hún undir áhrifum eiturlyfja ? eða átti hún eitthvað sökótt við íbúa hússins og lét það bitna á blessuðu barninu ?

Víkurfréttir hafa eftir nágrönnum að mikil umferð lögreglubíla hafi verið um svæðið. Þá segir einn þeirra að lögreglan hafi verið þarna síðast fyrir tveimur eða þremur sólarhringum en nú væri viðbúnaður lögreglu allt annar og miklu meiri.

Þessu verður víst ekki svarað fyrr en yfirheyrslum yfir konunni lýkur. Og ekki ætla ég að fara að meta né dæma um ástæður þessa verknaðar.

Hver sem hún var er engin afsökun til fyrir verknaði af þessu tagi. Megi konan þurfa að sitja sem lengst í fangelsi fyrir gjörðir sínar.

Það má leiða að því líkum að blessað barnið þurfi á sálfræðihjálp að halda eftir að það hefur jafnað sig. Sem ég vona svo sannarlega að það geri.

Því traust barnsins á mannfólkinu hlýtur að hafa skaðast all verulega eftir þetta og því þarf það örugglega á hjálp að halda, sem ég vona að það fái.


Barnaníðingar vanaðir.

Pólska þingið hefur samþykkt ný lög sem kveða á um að heimilt verði að vana menn sem gerast sekir um kynferðisbrot gegn börnum. Málið hefur vakið talsverða athygli og eru mannréttindasamtök í Póllandi ekki á eitt sátt við nýju lögin.

Mikið er ég sammála slíkum lögum, og vildi óska þess að hér yrðu sett svipuð lög.

Níðingarnir afpláni sinn dóm, en eftir það verði þeir vanaðir með lyfjagjöf svo önnur börn lendi ekki í þessum perrum eftir að þeir losna út.

Með sömu löggjöf og Pólverjar hafa samþykkt er skapað meira öryggi fyrir önnur börn á að lenda ekki í þessum djöflum.

Lyfjavönun felst í því að testósterómagn í blóðinu er lækkað með lyfjum og minnkar það kynlöngun viðkomandi.

Frétt DV má annars lesa hér.


Hin 5 H sem Stefán F. S. þarf að svara að mínu mati.

þetta eru 5 spurningar sem mér finnst Stefán F. S. þurfi að svara, Þar sem hann virðist loka á fólk af mjög litlu tilefni.

Hafi hann ekki góð rök til svars við þessum 5 spurningum, verð ég að telja hann frekar lítinn mann.

En ég vil ekki trúa öðru en að hann hafi svör við þessum spurningum, þar sem þessi skilyrði birtast fyrir neðan höfundarmynd hans.

1) Hvað er óviðeigandi komment ?

2) Hvað er nafnleysi í þínum huga ?

3) Hvaða mörk ertu með í huga, þegar að þú segir að lokað sé á þá sem fara yfir mörkin ?

4) Hversvegna þarft þú að fara yfir komment fólks áður en þú birtir þau ?

5) Hversu hörundsár ert þú, að þú þurfir að ritskoða komment ?


Á Rás með Grensás.

Sjónvarpsþátturinn Á Rás með Grensás í kvöld er búinn að vera frábær, á ég þá við hvað safnast hefur gríðarleg upphæð. Sem og þeir skemmtikraftar, símsvörunarfólk sem og aðrir sem að þættinum komu.

Enda ekki þörf á, sé litið til aðstöðunnar á Grensásdeild. Hún er hreint hörmuleg svo ekki sé sterkar tekið til orða.

Yfir 113.000.000 milljónir hafa safnast þegar þetta er skrifað, og það fyrir utan alla þá aðstoð sem og aðrar gjafir sem gefnar hafa verið.

Þær má meta á þó nokkrar milljónir í viðbót við þær peningagjafir sem komnar eru.

Og enn á eftir að safnast...hreint frábært framtak Íslendinga á þessum krepputímum. Innilega til hamingju Íslendingar með góðvild ykkar.

Ég spái að heildarupphæðin verði um 150.000.000 milljónir, peningar sem aðrar gjafir þegar upp verður staðið. Held að það sé met á Íslandi.

Enda mjög göfugt verkefni um að ræða. Að lokum vil ég segja þetta.

Heil sé þér Edda Heiðrún Backman, mín gamla skólasystir.


mbl.is Rúmlega 113 milljónir safnast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sparað á vitlausum stað.

Skrifstofa Alþingis er hætt að greiða blaðaáskriftir fyrir...

Það er merkilegt að það skuli verið tekin upp sparnaður á þessu sviði hjá Alþingi Íslendinga, og það daginn áður enn Davíð er skipaður ritstjóri MB.

Einkennileg tilviljun...og þó ekki, sjálfsagt vitað það með vissu að Davíð yrði næsti ritstjóri MB.

Ekki það að þingmenn geti ekki borgað fyrir sín blöð sjálfir, en samt einkennilegt að Jóhanna skuli byrja sparnaðinn þarna.Og það akkúrat núna.

Hefði verið nær að fylga öðrum eftir og lækka sín laun frekar.

Áskrift að MB er alger tittlingaskítur miðað við að ef þeir Alþingismenn/konur og ráðherrar hefðu tekið á sig launalækkun um ca. 10 %.

Það væri meira við hæfi að þetta blessaða fólk gerði það, ef miða á við þær skerðingar sem almenningur hefur þurft að taka á sig og þurfa að að taka á sig á næstunni, ef marka má orð þeirra sem sitja þetta háa Alþingi.


mbl.is Alþingi hætt að greiða fyrir heimsend dagblöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Átti í ástarsambandi við frægan föður sinn

Leikkonan Mackenzie Phillips segir í nýrri sjálfsævisögu sinni að hún hafi átt í löngu ástarsambandi við föður sinn, tónlistarmanninn fræga John Phillips úr Mamas and the Papas. Vefútgáfa tímaritsins People hefur komist yfir eintak af bókinni og lekur upplýsingunum í dag.

Ég spyr, hvað rekur fólk til að gefa út bók um svona lagað...Syfjaspell !

Mackenzie Phillips hefur nú ekki verið mjög þekkt á sviði kvikmyndaleiks... reyndar mjög lítið þekkt á því sviði.

Þekktust hefur hún verið fyrir að vera dóttir John Phillips úr mamas and the papas.

Svo ég álít að hér sé eingöngu verið að leita eftir peningum með því að upplýsa sifjaspellsmál sem kannski og kannski ekki hefur átt sér stað.

Flestir sem lent hafa í slíku og vilja tala um slíkt leita til samtaka/stofnana sem geta hjálpað í slíkum tilvikum.

En ekki Mackenzie Phillips. Hún gefur út bók í peningaskyni og til að ófrægja látin föður sinn sem getur ekki svarað fyrir slíkar ásakanir.

Faðir hennar, John Phillips, lést árið 2001. Svo að maður spyr ? var arfurinn búinn fyrst að hún gefur út bókina núna, 8 árum eftir lát föður síns.

Og af hverju sagði hún ekki frá þessu fyrir löngu síðan, meðan faðir hennar var á lífi ? Það er ólykt af þessu máli.

Auk þess að vera að gefa út bókina hefur hún verið bókuð í viðtal hjá Opruh Winfrey þar sem hún greinir frá frekari smáatriðum í ótrúlegri sögu sinni.

Jahá, meiri peningar fyrir að koma fram í slíkum þætti.

Maður fær velgju við að lesa svona fréttir um fólk sem kann greinilega ekki að skammast sín, og með siðferðiskend á afskaplega lágu plani.


En hvað hafa gyðingar fundið upp fyrir heiminn ?

Það var sama hvað ég googlaði þessi orð

(what have jews invented for the world)

þá fannst ekkert nema eitt atriði sem þó hefur verið eignað múslímum til þessa...Hvað skyldi það vera ? Jú hryðjuverkastarfsemi !

En sannleikurinn er sá að það er komið frá gyðingum sjálfum.

Held að þetta myndband þar sem talað er við gyðinga sem reina að réttlæta þessa uppfinningu sína segja sína sögu.


Hvað hafa Arabar/múslímar gert fyrir heiminn ?

Það sem Arabar/múslímar hafa gert fyrir heiminn...fundið upp, er meira en nokkurn mann grunar...þannig að mjög mörgu leiti má seigja, hvar væri heimurinn í dag án uppfinninga þeirra ?

Hér er smá upptalning á því sem Arabar/múslímar hafa fundið upp.

Kaffið...Eimingu/hreina eimingu/vatns eimingu/vatns hreinsun... Þurreimingu...

Gufu eimingu...Málmhúðun...Rósa vatn / notað í olíur og ilmvötn t.d. og í drykki...

Sælgæti/sælgætisgerð...3ja rétta máltíðin er frá þeim komin...

glerið...Damascus stálið...Skammbyssurnar...kveikjulásinn.

fyrstu fallbyssuna...nýtingu á olíu...steinolíu sem og steinolíulampann...

Voru fyrstir til að vinna bensín úr olíu...tjöru... Leirgerð/leirkeragerð...

Leirkera húðun/glerunginn...Sveigflúr (arkitektúr) Stíflugerð/brúarstíflur,

Vatnsveitukerfið...Mínarettur/turnagerð, háir turnar,mannvirki,

Myllugerð/mylluna...Kasthjólið/notað í vélar t.d...Pappírs mylluna/ pappír

Vindmylluna...tannlækningavörur/efni...Tannlitun...Tannkremið...

Varalitinn...Hársnyrtingu/Hárlitun...Hársmyrsl,Handkrem...

Sólvarnarkrem...Handsápuna...Svitalyktareyðir...Almenn sjúkrahús.

Og lengi mætti telja upp hvað hin múslímski heimur hefur gert fyrir okkur, þrátt fyrir að flest sé talið þeim til foráttu í dag.

Margt annað sem múslímar hafa fundið upp má lesa hér


Stokkað upp í ríkisstjórn.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ræðir við...

Fulltrúar þjóðanna eru að tala saman og ég er að vona að við getum fengið einhverja niðurstöðu í málið fyrir lok þessarar viku,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra aðspurð um stöðu Icesave-málsins á stuttum blaðamannafundi á Hilton hótel Nordica fyrir stundu.

Hún útilokar hins vegar ekki að stokkað verði upp í ríkisstjórninni.

Ég vil nefna einn ráðherra sem Jóhanna ætti að skipa út, og það strax.

Það er Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra.

Sá maður á ekki heima í þessum ráðuneytum...af mínum kynnum við hann (gegnum email) sýndi hann svo ekki varð um villst hversu hjartalaus og gersneyddur þeirri hugsun hann er að aðstoða þá sem á þurfa að halda.

Fríaði sjálfan sig frá málefni sem tilheyrir ráðuneyti hans, og hefur ekki séð sóma sinn í að svara aftur emaili frá mér þar sem ég benti honum á þetta.

Gripið til aðgerða fyrir áramót

Hins vegar væri alveg ljóst að gripið yrði til aðgerða til handa heimilunum fyrir áramót. Á því væri enginn vafi.

Hvaða aðgerðir skyldu það verða ? Verður þeim sem minnst meiga sín bætt sú kjaraskerðing sem þeir hafa orðið fyrir síðan núverandi stjórn settist á þing ? Efast stórlega um það.

Forsætisráðherra boðar jafnframt frekari skattahækkanir og auknar álögur til að stoppa í það mikla gat sem hrunið hefur skilið eftir í fjárlögunum.

Hvar hefur hingað til verið skorið mest niður ? Jú í heilbrigðismálum sem og þar sem garðurinn er lægstur.

Hjá ellilífeyrisþegum og öryrkjum...kæmi ekki á óvart ef einnig yrði skornar niður atvinnuleysisbætur fólks.

 


mbl.is Lausn í Icesave í sjónmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband