mið. 5.8.2009
Prumpaði Tiger Woods í beinni?
Ofurkylfingurinn Tiger Woods var staddur á 18. holu í Buick Open golfmótinu um síðustu helgi þegar einhver í nágrenni við upptökuvélarnar á svæðinu leysti vind. Var það Tiger sjálfur? Hann og kylfusveinninn hans hlæja í það minnsta að atvikinu á meðfylgjandi myndbandi.
Meðfylgjandi myndband er tekið úr morgunþættinum Good Day LA þar sem þáttastjórnendur sýna myndbandið vígalega. Ráðgátan er hins vegar sú, hver prumpaði?
Sjónvarpsstöðin CBS sem sýndi frá mótinu fullyrðir að það hafi ekki verið Tiger sem leysti vindinn. Hvernig þeir leituðu af sér allan grun fylgir hins vegar ekki sögunni.
Tiger Woods vann alla vega mótið með þremur höggum, vindhöggið hefur eflaust ekki verið talið með.
Myndbandið er hér ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 5.8.2009
Er hann fígúru fyrirmynd hjá Ladda ?
Djö.....minnir hann Jónas Kristjánsson, bloggari og fyrrum ritstjóri, mig mikið á einn karakterinn sem Laddi hefur verið með í prógrömmum sínum...
Ég bara man ekki hvað sá karakter er kallaður.
Ef ykkur finnst það sama og ég...en munið nafnið á karakternum...skrifið það þá í commentið.
Kæmi mér ekki á óvart ef Jónas er ekki bara fyrirmyndin sjálf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 5.8.2009
Skulda ég rúman milljarð !?
Ef það er rétt að hver íbúi þessa lands skuldi rúman 1,1 milljarð kr. ...ef ég skil þetta rétt.....Þá ætla Þessir fokking Útrásar aumingjar... að láta okkur súpa seyðið af þessum sandkassaleik þeirra...meðan þeir spóka sig um heiminn með fullar hendur fjár...og hugsa örugglega eitthvað á þessa leið til okkar...Get over it Icelanders..."we have"
þá er eins gott að fara bara og pakka niður og flytja til Morocco...þar get ég þó lifað af örorkubótunum mannsæmandi lífi...إلى اللقاء
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 5.8.2009
Stjörnuspá
Sporðdreki: Það er ágætt að eiga sér draum en hann getur aldrei leyst veruleikann af hólmi. Til allrar hamingju er svarið beint fyrir framan þig.
Þegar ég las þessa spá...var ég auðvitað fyrir framan skjáinn...en ég hef nú aldrei átt mér þann "draum" að verða tölvuskjár samt..glætan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þri. 4.8.2009
Hvenær reynir maður að vera fyndin ?
Jah allavega ekki í jarðaför maka síns...svo er víst. En þar
sagðist Ryan O´Neal hafa óvart reynt við dóttur sína Tatum við útför konu sinnar Farrah Fawcett.
Tatum hlýtur að hafa farið í ansi margar lýtaaðgerðir fyrst hennar eigin faðir tók feil á henni og einhverri Sænskri konu.
Ryan kallinn hefur nú alltaf verið kvennasamur...en fyrr má nú rota en dauðrota en að flaðra upp um annað kvenfólk í jarðaför maka síns.
Segi nú ekki annað...
bara smápæling.
Ryan reyndi við Tatum í jarðarför Fawcett | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
mán. 3.8.2009
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson rökþrota!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)