Má bjóða ykkur ís elskurnar mínar.

Mr. Ding-A-Ling


Styrkja veikan dreng.

Að styrkja veika er mjög gott málefni að mínu mati.

 Þessi drengur sem er verið að fara að styrkja á suðurnesjum, á örugglega skilið að honum sé létt lífsbaráttan í hans erfiðu veikindum.

 En ég get ekki skilið að fé það sem safnast sé lagt inn á bankareikning föður hans ! ( Bnr. 0143-26-375  kennitala pabba hans, kt. 300361-3589.)

 Af hverju er ekki Banki látin sjá um það fé sem safnast og sjá um ráðstöfun þess eins og venja er þegar safnað er fyrir veikt fólk eða þá sem lent hafa í hörmungum öðrum ?

 Ég bara spyr.


Ósmekkleg umfjöllun í þætti Jóns Ársæls.

Heldur fannst mér ósmekklegt viðtal/umfjöllun sem var í þætti Jóns Ársæls nú í kvöld um svokallaða meinta áreitni Ólafs Skúlasonar Biskups gagnvart Sigríði Pálínu fyrir áratugum síðan, um atburð sem aldrei var sannaður. Hver maður er saklaus uns sekt er sönnuð. Sekt var og verður ekki sönnuð í þessu tilfelli, þar sem maðurinn er látinn. Það er það sem gerir þetta mál svo ósmekklegt, maðurinn er látinn og getur ekki svarað fyrir sig. Það var búið að fjalla um þetta mál vel og vandlega meðan Ólafur var á lífi og Sigríður Pálína fékk að koma sögu sinni á framfæri þá, því að koma fram aftur núna og nudda salti í sárin á fjölskyldu Ólafs þar á meðal barnabörnu hans sem höfðu ekki upplifað fyrri umfjöllun. Hvers eiga þau að gjalda. Hvort sem þessi atburður hafi átt sér stað eða ekki þá var og er engin ástæða til að rifja hann upp þar sem meintur gerandi er látinn fyrir nokkru árum síðan. Þeir sem horfðu á þáttinn tóku væntanlega eftir í frásögn Sigríðar Pálínu um svokallað einelti sem hún varð fyrir að eigin sögn, fólk átti einnig að hafa setið í bílum sínum fyrir utan hús hennar til þess eins að glápa á hana inn um gluggana. það átti að hafa verið setið fyrir henni til þess eins að koma henni fyrir kattarnef. Í mínu huga er þessi manneskja haldin þráhyggju og var greinilega haldin ofsóknaræði líka á þessu tíma. Hafi hún sem og Jón Ársæll skömm fyrir þennan þátt.


Fyrir spæjara og (innbrotsþjófa)

Var í heimsókn hjá mömmu gömlu í dag, sem í sjálfu sér er ekki í frásögu færandi. En mér var litið í einn auglýsingapésa frá versluninni Tiger, fletti honum svona aðeins W00t, og rekst þá á eina vörutegund auglýsta, sem er fjölnota vasahnífur. Allt í lagi með hnífinn svo sem, en það sem undir myndinni stóð stakk mig illilega. Þarna var verið að auglýsa hníf sem sagt að væri góður fyrir Spæjara og (innbrotsþjófa) Woundering. Sjálfsagt átt að vera grín hjá þeim Tiger mönnum. En heldur ósmekklegt grín að mínu áliti.

Ronaldo átti það skilið.

Ronaldo átti það svo sannarlega skilið að fá gullboltann, ef einhver átti það skilið. Lék frábærlega á síðasta tímabili, og er að komast í gang núna. Þeir sem kusu aðra, tel ég vera litaða af uppáhalds liði sínu sem og leikmanni, og hafa kosið eftir því. Ronaldo átti skilið að fá 100% kosningu, en eins og ég sagði áðan þá litast kosningin af uppáhaldsliði og leikmanni að mínu mati. Hvað sem öðrum finnst.
mbl.is Cristiano Ronaldo fékk Gullboltann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenska landsliðið í góðum gír.

Það verður ekki af þeim tekið strákunum í Íslenska handboltalandsliðinu, að þeir eru að standa sig frábærlega þrátt fyrir að það vanti 6 leikmenn úr Ólympíu liðinu. Guðmundur þjálfari landsliðsins virðist svo sannarlega kunna til verka og geta þjappað...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband