sun. 4.5.2008
Geðveikur ? get real.
Þessi maður er svo sannarlega ekki geðveikur, hef aldrei heyrt um geðveika persónu sem hefur planað hlutina eins vel og þetta ógeð frá Austurríki. Stækkun á kjallara árum saman í samræmi við fjölgun barnanna sem hann eignaðist með dóttur sinni, flóknum læsingum á hurðum sem og fjölda þeirra til að fela fangelsi dótturinnar sem og barnanna. Það ætti að loka hann inni í þessu sama fangelsi sem hann lokaði dóttur, börn og barnabörn sín inni í og leifa honum að kynnast því sjálfur hvernig það er að vera lokaður inni í gluggalausu fangelsi. En án sjónvarps og útvarps þó.
Segir Fritzl ósakhæfan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.