þri. 9.12.2008
Fyrir spæjara og (innbrotsþjófa)
Var í heimsókn hjá mömmu gömlu í dag, sem í sjálfu sér er ekki í frásögu færandi. En mér var litið í einn auglýsingapésa frá versluninni Tiger, fletti honum svona aðeins , og rekst þá á eina vörutegund auglýsta, sem er fjölnota vasahnífur. Allt í lagi með hnífinn svo sem, en það sem undir myndinni stóð stakk mig illilega. Þarna var verið að auglýsa hníf sem sagt að væri góður fyrir Spæjara og (innbrotsþjófa) . Sjálfsagt átt að vera grín hjá þeim Tiger mönnum. En heldur ósmekklegt grín að mínu áliti.
Athugasemdir
Þarna er nú heldur of langt gengið....ussususs
Solla Guðjóns, 9.12.2008 kl. 17:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.