lau. 15.8.2009
Ekki er öll vitleysan eins...
Eins og þessi grein um sölu á grafreit við hliðina á Marilyn Monroe sýnir.
Allt gert til að eignast pening...þá skiptir engu þó fjarlægja þurfi líkhamsleifar maka síns yfir í annan grafreit svo að hægt sé að selja fyrri grafreitinn fyrir háa fjárhæð...jú vegna þess að fræg persóna liggur við hlið þess grafreits sem á að selja...sjúkt.
En þetta er víst í henni Ameríkunni...allt falt fyrir græna dollara seðla.
Lagst til hvílu hjá Marilyn? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sniðug mynd sem þú fannst með þessu, þetta er ferlega sick.
Ásdís Sigurðardóttir, 15.8.2009 kl. 22:42
Jamm...eins og það skipti einhverju máli hvar beinin liggja...þú ert jú dauð/ur
brahim, 15.8.2009 kl. 23:22
brahim: mér finnst þetta vera í lagi, en að taka fólk úr gröfinni og hafa það til sýnis, finnst mér fyrir neðan allar hellur, egipskir kóngar og þræla þeirra liggja í söfnum um allan heim, sýnir að maður getur ekki öðlast hina hinstu hvíld nema vera brenndur, og látin blandast jörðinni aftur, á ein eða annan hátt.
Magnús Jónsson, 16.8.2009 kl. 00:05
um að gera að fólk fái aðeins að teygja úr sér.
Páll Blöndal, 16.8.2009 kl. 00:37
Magnús...fyrir mér er þetta siðleysi sem þessi kona í BNA er að gera...mín skoðun nota bene...Hitt er í engu betra...sama lögmálið...peningar. Og já að vera brendur tryggir í það minsta frið fyrir peningaplokkurum.
brahim, 16.8.2009 kl. 02:18
PB:Já kannski getur blessaður eiginmaðurinn teygt aðeins úr sér áður en hann leggst í nýja gröf...hver veit .
brahim, 16.8.2009 kl. 02:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.