Skyrið slær í gegn i Norge.

Það var þó aldrei að ekki væri hægt að koma þessari fínu og mjög svo góðu vöru ofaní Norsarana...virðist ætla að slá öll met þar ef marka má gd.no í NOREGI.

En mikið vildi ég sjá jafn smekklegar umbúðir hér á landi eins og notaðar eru í Noregi.


mbl.is Skyr slær í gegn í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bý í Noregi og varð ægilega glöð þegar ég sá að það var komið skyr. En mikil vonbrigði þegar ég smakkaði það og svo er það geðveikislega dýrt. Afhverju er ekki hægt að selja bara venjulegt óhrært skyr?

Helga (IP-tala skráð) 10.9.2009 kl. 06:30

2 identicon

Hálf þjóðin verður komin til Noregs innan skamms, þannig ekki seinna vænna en að flytja út það sem allir VERÐA að fá ;-)

lundi (IP-tala skráð) 10.9.2009 kl. 08:34

3 Smámynd: brahim

Helga: Er nútímafólk ekki bara orðið svo latt að það nennir ekki að vinna úr óhrærðu skyri heima hjá sér.

Afhverju varðstu fyrir vonbrigðum með skyrið...fyrir utan að það var ekki óhrært skyr ?

Og hvað kostar það þarna í Noregi ?

brahim, 10.9.2009 kl. 12:48

4 Smámynd: brahim

lundi: Það eru víst ansi margir farnir til Noregs sem og annarra landa í Skandinavíu...og á örugglega eftir að fjölga frá og með 31 okt.

Því þá fellur úr gildi þessi frestun á húseignauppboðum sem hefur verið í gildi...Þannig að margir eiga eftir að sjá sína sæng útbreidda og fara einfaldlega úr landi.

En hvort þeir elti skyrið til Noregs er annað mál.

brahim, 10.9.2009 kl. 12:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband