Færsluflokkur: Bloggar
mán. 27.7.2009
Hollenskir heillast af Húsavík
Jæja fátt er svo með öllu illt að það skuli nú ekki í það minnsta 3 Hollendingar elska part af íslandi...það er að segja Húsavík.
Semja lög í anda Sigurósar um hvalskoðunarferð frá Húsavík og annar skrifaði bók um ferð sína til Húsavíkur fyrir einhverjum árum síðan.
Þetta er þó jákvæður punktur...ekki satt ? Enda Húsavík fallegur staður og með eina fallegustu kirkju landsins.
![]() |
Hollenskir heillast af Húsavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mán. 27.7.2009
Ómerkilegt og siðlaust
Heldur finnst mér þetta ómerkileg...siðlaus og örugglega ólögleg aðför Fortis-banka að frysta peningaeign Íslands vegna skulda föllnu íslensku bankanna.
Þetta er enn eitt dæmið um hversu ómaklega er sótt að Íslandi á þessum síðust og verstu tímum landsins... Við erum beitt mjög vægðarlausum ruddaskap og það versta er að við eigum fáa ef nokkra raunverulega vini á alþjóðavettvangi.
Greinilegt er að það á að pynta og lúberja á Íslendingum eins og mögulegt er til að við sættum okkur við eitthvað sem engin þjóð í alþjóðlegu samstarfi myndi sætta sig við.
Það sést best á því að við eigum að taka á okkur miklar byrðar gegn loforði um að komast inn í aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Verst af öllu er að of margir stjórnmálamenn hér á Íslandi eru tilbúnir að semja um og setja Ísland í vonlausa stöðu til að eygja von á að geta gengið nokkur skref lengra í átt að gömlum draumi pólitíkusa, sem hefur í raun verið mjög fjarlægur lengi.
Engan þarf að undra né efast um...að Samfylkingin gengur þar fremstur flokka.
Aðför við Ísland af hálfu Fortis-banka er lýsandi um hvernig staða Íslands er. Þar er eflaust mörgum um að kenna, en í því er mikil ábyrgð fólgin í að taka eina þjóð fyrir vegna afglapa nokkurra.
ÚTRÁSARVÍKINGA OG MISVITURRA BANKAMANNA SEM OG ÓHÆFRA STJÓRNMÁLAMANNA.
HINN ÍSLENSKI ALMENNINGUR ER SAKLAUS AF ÞESSARI FOKKING ÓREIÐU:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
sun. 26.7.2009
Taugaáfall v/líkamsræktunar !??
Er það hægt ?...svarið er Nei... í Washington Post segir, "felt faint"...(sentir faible á frönsku) sem er alls óskylt orðinu nervous breakdown (taugaáfall)...(dépression nerveuse á frönsku) sem yfirleitt er tengt við þunglyndi og/eða kvíða...
væntanlega hefur sá sem skrifað fréttina...eða sem líklegra er...þýtt hana úr frönsku blaði...og kann þar af leiðandi ekki frönsku upp á sína 10 fingur...fyrst hann hefur fengið þessa meiningu út.
Það sem hefur skeð með hann Sarkosy blessaðan, er að hann hefur einfaldlega ofreynt sig í æfingunum og að það hreinlega liðið yfir hann vegna ofþreytu...(afleiðing of mikillar áreynslu)
Muna að drekka nóg af vatni fólk...ef þið eruð að taka svo hressilega á því eins og Frakklandsforsetinn gerði greinilega.
au revoir.
![]() |
Sarkozy fékk aðsvif |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
lau. 25.7.2009
Eru þessir stúdentar hommar/lesbíur ?
Q (Quire)...samtök hinsegin stúdenta ?hverskonar stúdentar eru það ? Eru þeir í einhverju frábrugðnir öðrum stúdentum ? Að nota orðið hinsegin um einhvern hefur hingað til eða var, notað um þá sem voru einhvernvegin öðruvísi en allir aðrir sbr. Hommi/Lesbía, held þó að ekki sé verið að vísa í slíka merkingu...en hvern fja..an veit maður um það þó. Mörg orð í dag hafa allt aðra merkingu heldur en áður fyrr. Svo það er von að maður spyrji...
![]() |
Hinsegin stúdentar skora á Össur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 26.7.2009 kl. 19:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
lau. 25.7.2009
Í hrauni og mosa upp að hnjám !?
![]() |
Erfitt að komast að eldunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
fös. 24.7.2009
Eiður Smári í byrjunarliðinu ?
Var þetta byrjunarlið ekki bara sýning á leikmönnum (þó ekki öllum) sem Barcelona vill selja !? En örugglega ágætt fyrir Eið að sýna sig þarna í þeirri von að eitthvað sterkara lið en West Ham fái áhuga á honum.
Eiður er nú samt of latur leikmaður að mínu mati...eins og aðrir hafa orðað svo um hann...þar á meðal samherji hans í landsliðinu.
Eiður er samt góður leikmaður...það verður ekki af honum tekið...En samt...hann verður að vera mun hreyfanlegri í leikjum og bjóða sig eins og sagt er á fótboltamáli.
Vona bara að hann taki sig á hvað letina varðar...þá mun honum vegna vel...í það minnsta 5 ár í viðbót.
![]() |
Eiður Smári var í byrjunarliði Barcelona |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
fös. 24.7.2009
Koma nú allir krimmar landsins!!

![]() |
Lögregla komst ekki í útköll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 23.7.2009
Spáir stórskjálfta 27. júlí



Í ítarlegu viðtali lýsir Lára því meðal annars hvernig hún sá fyrir Suðurlandsskjálftann í fyrra. Hafði hún hringt á Veðurstofuna 10 dögum áður og látið vita. Fimmtán mínútum áður en sá skjálfti reið yfir rak hún eiginmann sinn og lettneskan vinnumann niður úr byggingu sem þeir unnu að. Lára sá sömuleiðis fyrir Suðurlandsskjálftann árið 2000. Í viðtali við Morgunblaðið um burstabæi og kirkjur sagði hún að það sama ár myndi skjálfti ríða yfir. Einum og hálfum mánuði síðar reið skjálftinn stóri yfir.
Nú spáir Lára því að næsti skjálfti ríði yfir mánudaginn 27. júlí, nánar tiltekið klukkan 23:15. Mér hefur verið sýnt að það komi stór skjálfti þarna (á Krýsuvíkursvæðinu), ég stend á þessu svæði og upp í hugann kemur dagsetningin 27. júlí. Einnig finn ég fyrir tímasetningunni 23:15 en þori þó ekki að staðhæfa að það verði rétt. Ég hef ekki fengið sterk skilaboð um tímann en finnst þessi síðasta klukkustund fyrir miðnætti eitthvað sérstök. Ég stend í Krýsuvík og á vinstri hönd sé ég Strandakirkju og hægri hönd Grindavíkursvæðið. Þessi tala hverfur ekki frá mér, segir Lára. Þennan dag mun eitthvað magnað gerast, ég bara veit það. Ég hef tilfinningu fyrir stórum skjálfta og mér finnst að hann verði þarna.
Vikan bar frásögn Láru undir Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðing. Hann segir enn spennu í jörðinni sem ekki hafi læðst úr læðingi í síðustu skjálftum. Hins vegar sé ekkert sem bendir til þess að stór skjálfti sé yfirvofandi á þessu belti. Stór skjálfti þarf alls ekki að koma á Suðurlandi næstu áratugina. Þegar hann hugsanlega kæmi er líklegast að hann yrði frekar austarlega á skjálftabelti Suðurlands, nær Heklu, segir Ragnar sem telur sömuleiðis enga hættu á eldgosi, enda ekki gosið á þessu svæði síðan á 14. öld.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 23.7.2009
Rottur nöguðu tær af ungabarni
Hvar var parið þegar þetta skeði ? Barnið hefur væntanlega ekki þagað þunnu hljóði meðan þetta gerðist!...nú eða þá nágrannarnir...hvar voru þeir...hljóðin frá barninu hafa varla farið framhjá neinum ? En er þetta bara ekki tíbísk..."ég heyri ekki...sé ekki...veit ekki...hegðun bandaríkjamanna" ?
Lögreglan handtók móður stúlkunnar, sem er undir 18 ára aldri, og kærasta hennar sem er 18 ára gamall. Fólkið bjó í litlu hjólhýsahverfi nálægt Piketon en móðirin og kærasti hennar hafa verið úrskurðuð í gæsluvarðhald næstu tvær vikurnar, eða þar til mál þeirra verður tekið fyrir hjá dómstólum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)