Færsluflokkur: Bloggar

Ekið á sjúkrabíl í forgangsakstri

Alltaf er maður jafn hissa þegar svona kemur fyrir eins og segir í fréttinni. Er fólk gersamlega heyrnarlaust eða hvað ? Það fer ekkert á milli mála hvað um er að vera þegar sjúkrabílar nú eða lögreglubílar eru í forgangsakstri.... blikkandi ljós og sírenuvæl. Lítur fólk ekki í kring um sig þegar það heyrir sírenuvælið svo nálægt sér eða hvað! Það er því miður daglegur viðburður að fólk hunsi þessi merki sjúkrabíla og lögreglu í forgangsakstri....víkur ekki úr vegi eða stoppar ekki heldur vegna þess að þeim sjálfum liggur þessi reiðarinnar ósköp á að komast sinna eigin leiða. SKAFIРÚR EYRUM OG OPNIÐ AUGUN GOTT FÓLK. 
mbl.is Ekið inn í hlið sjúkrabíls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir ríkisborgaraprófin mismuna á margan hátt

Hafsteinn Gunnar Haukson skrifar á Vísir.isÞegar ráðuneyti segir að prófin eigi að vera hjálpartæki fyrir innflytjendur til að aðlaga sig en ekki sía, þá fellur það náttúrulega um sjálft sig," segir Ingibjörg Hafstað, yfirmaður íslenskukennslu í Alþjóðahúsinu. Hún er afar óánægð með ríkisborgaraprófin í íslensku sem lögð voru fyrir í fyrsta sinn í júní og ætlar að fá þá sem féllu til að kæra prófin.

Alls féllu tólf umsækjendur á prófinu og fá því ekki ríkisborgararétt líkt og þeir stefndu að. Ingibjörg segir prófið mismuna umsækjendum á margan hátt.

„Það er verið að sigta út ákveðinn hóp fólks sem ekki fær ríkisborgararétt," segir Ingibjörg.

Hún nefnir sem dæmi að Asíubúar sem tali svokölluð tónamál eigi mun erfiðara með að læra íslensku en Evrópubúar, enda tungumál málsvæðanna í grundvallaratriðum ólík og stafróf þeirra sömuleiðis. Því til stuðnings segir hún meirihluta þeirra sem féllu á ríkisborgaraprófinu vera Víetnama, þó dómsmálaráðuneytið hafi enn ekki staðfest það.

Þá segir hún illa menntað og fullorðið fólk eiga erfiðara með að ná prófinu en aðrir. Ingibjörg gagnrýnir einnig reglugerðina um prófin og segir hana útiloka ólæsa frá því að fá ríkisborgararétt.

„Það er stefna stjórnvalda að ólæsir fái ekki ríkisborgararétt. Það er ekki hægt að túlka þessa grein öðruvísi," segir Ingibjörg og vísar til fimmtu greinar reglugerðarinnar.

Þar segir: „Ekki er gert ráð fyrir sérstakri aðstoð í próftökunni við þá sem eru óskrifandi eða ólæsir á latneskt letur ef ætla má að þeir gætu náð þeirri færni með hefðbundnu lestrar- og skriftarnámi."

„Það þýðir ekki að segja við ólæsan einstakling: Reyndu samt."

„Ef þú ert illa læs á þitt móðurmál og þarft svo að læra nýtt letur, þá er eiginlega ómögulegt að verða sæmilega læs á mál sem þú kannt ekki.," segir Ingibjörg. Hún gerði að eigin sögn athugasemdir við reglugerðina þegar hún var samin sem ekki voru teknar til greina.

Ingibjörg reynir nú að hafa uppi á þeim einstaklingum sem féllu á ríkisborgaraprófinu og fá þá til að kæra prófið til umboðsmanns alþingis fyrir brot á jafnræðisreglu.

Það sem ég vil segja um þessa grein, er að þessar reglur eru löngu tímabærar hér á landi. Því hér er allt of mikið af erlendu fólki sem nennir ekki og vill ekki læra tungumál okkar, einfaldlega af því að það umgengst eingöngu fólk af sama þjóðerni. Sbr. Asíu fólk og Austur-Evrópu fólk. Það samlagar sig því ekki okkur Íslendingum nógu vel. Að segja að tungumálin séu svo ólík að þess vegna eigi það í erfiðleikum með að læra okkar mál er bara bull. Þetta fólk sem kemur hingað og ætlar sér að vera hér, á að sjá sóma sinn í að læra málið. Það eru þó nokkur dæmi um marga af þessum uppruna sem hefur lært málið ágætlega, einfaldlega af því að það vildi og ætlaði sér það. Ingibjörg og co ættu einfaldlega að gera kennsluna skilvirkari og hætta þessu væli. Hér á landi er t.d. einnig Arabar sem hafa gersamlega ólíka skriftarvenjur sem og tungumál rétt eins og Asíu og A-Evrópu fólk en tala samt mjög góða Íslensku. Það ættu einnig að vera komið í lög fyrir löngu síðan að innflytjendur séu skikkaðir á 3ja mánaða námskeið til að læra tungumálið áður en þeir fá atvinnuleyfi. Þessum sömu lögum og reglum þurfa Íslendingar að hlíta ef þeir vilja flytja og fá atvinnu í öðrum ESB löndum. Því á ekki það sama að gilda um þá innflytjendur sem koma hingað til lands. Ég bara spyr ?

Varað við vefsíðu Gylfa Ægissonar

Þeim sem hafa áhuga á að heimsækja vefsíðu Gylfa Ægissonar er vinsamlega bent á þá hættu að tölva þeirra gæti smitast af vírus sem eyðileggur stýrikerfi tölva. Þessi aðvörun kemur frá Google.com sem fann síðast vírus á síðu G.Æ. þann 22. júní´2009.

http://www.google.com/interstitial?url=http://www.gylfiaegisson.is/styri/images/pages/4_jpg_jpg_jpg_jpg.htm

http://www.stopbadware.org/dac9428197cf8612be0d907e63d074a7


Gott ráð gegn bílþjófnaði ?

bílþjófnaðurNúna verður bílnum sko ekki stolið Bandit

Allt er nú gert að kennsluefni

 

 

 

 

 

 

 

 analAlt er nú kennt í henni Ameríkunni.Crying


Bíll til sölu á 1/2 virði

bíll á hálf virði

Má bjóða ykkur ís elskurnar mínar.

Mr. Ding-A-Ling


Styrkja veikan dreng.

Að styrkja veika er mjög gott málefni að mínu mati.

 Þessi drengur sem er verið að fara að styrkja á suðurnesjum, á örugglega skilið að honum sé létt lífsbaráttan í hans erfiðu veikindum.

 En ég get ekki skilið að fé það sem safnast sé lagt inn á bankareikning föður hans ! ( Bnr. 0143-26-375  kennitala pabba hans, kt. 300361-3589.)

 Af hverju er ekki Banki látin sjá um það fé sem safnast og sjá um ráðstöfun þess eins og venja er þegar safnað er fyrir veikt fólk eða þá sem lent hafa í hörmungum öðrum ?

 Ég bara spyr.


Ósmekkleg umfjöllun í þætti Jóns Ársæls.

Heldur fannst mér ósmekklegt viðtal/umfjöllun sem var í þætti Jóns Ársæls nú í kvöld um svokallaða meinta áreitni Ólafs Skúlasonar Biskups gagnvart Sigríði Pálínu fyrir áratugum síðan, um atburð sem aldrei var sannaður. Hver maður er saklaus uns sekt er sönnuð. Sekt var og verður ekki sönnuð í þessu tilfelli, þar sem maðurinn er látinn. Það er það sem gerir þetta mál svo ósmekklegt, maðurinn er látinn og getur ekki svarað fyrir sig. Það var búið að fjalla um þetta mál vel og vandlega meðan Ólafur var á lífi og Sigríður Pálína fékk að koma sögu sinni á framfæri þá, því að koma fram aftur núna og nudda salti í sárin á fjölskyldu Ólafs þar á meðal barnabörnu hans sem höfðu ekki upplifað fyrri umfjöllun. Hvers eiga þau að gjalda. Hvort sem þessi atburður hafi átt sér stað eða ekki þá var og er engin ástæða til að rifja hann upp þar sem meintur gerandi er látinn fyrir nokkru árum síðan. Þeir sem horfðu á þáttinn tóku væntanlega eftir í frásögn Sigríðar Pálínu um svokallað einelti sem hún varð fyrir að eigin sögn, fólk átti einnig að hafa setið í bílum sínum fyrir utan hús hennar til þess eins að glápa á hana inn um gluggana. það átti að hafa verið setið fyrir henni til þess eins að koma henni fyrir kattarnef. Í mínu huga er þessi manneskja haldin þráhyggju og var greinilega haldin ofsóknaræði líka á þessu tíma. Hafi hún sem og Jón Ársæll skömm fyrir þennan þátt.


Fyrir spæjara og (innbrotsþjófa)

Var í heimsókn hjá mömmu gömlu í dag, sem í sjálfu sér er ekki í frásögu færandi. En mér var litið í einn auglýsingapésa frá versluninni Tiger, fletti honum svona aðeins W00t, og rekst þá á eina vörutegund auglýsta, sem er fjölnota vasahnífur. Allt í lagi með hnífinn svo sem, en það sem undir myndinni stóð stakk mig illilega. Þarna var verið að auglýsa hníf sem sagt að væri góður fyrir Spæjara og (innbrotsþjófa) Woundering. Sjálfsagt átt að vera grín hjá þeim Tiger mönnum. En heldur ósmekklegt grín að mínu áliti.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband