Færsluflokkur: Bloggar

Ronaldo átti það skilið.

Ronaldo átti það svo sannarlega skilið að fá gullboltann, ef einhver átti það skilið. Lék frábærlega á síðasta tímabili, og er að komast í gang núna. Þeir sem kusu aðra, tel ég vera litaða af uppáhalds liði sínu sem og leikmanni, og hafa kosið eftir því. Ronaldo átti skilið að fá 100% kosningu, en eins og ég sagði áðan þá litast kosningin af uppáhaldsliði og leikmanni að mínu mati. Hvað sem öðrum finnst.
mbl.is Cristiano Ronaldo fékk Gullboltann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenska landsliðið í góðum gír.

Það verður ekki af þeim tekið strákunum í Íslenska handboltalandsliðinu, að þeir eru að standa sig frábærlega þrátt fyrir að það vanti 6 leikmenn úr Ólympíu liðinu. Guðmundur þjálfari landsliðsins virðist svo sannarlega kunna til verka og geta þjappað þessum ungu strákum vel saman. Til hamingju strákar.
mbl.is Ísland bar sigurorð af Þýskalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi er góður. Ha ha ha

A guy goes to the supermarket and notices an attractive woman waving at him.
 
She says hello.
 
He's rather taken aback because he can't place where he knows her from. So he says, 'Do you know me?'

To which she replies, 'I think you're the father of one of my kids.'

Now his mind travels back in time, he has never been unfaithful to his wife and says sarcasticly, 'Are you the stripper from the bachelor party that I made love to on the pool table with all my buddies watching while your partner whipped my butt with wet celery???'

She looks into his eyes and says calmly, 'No, I'm your son's teacher.'

Gjaldeyrishöft hjá sumum ! en öðrum ekki ?

Ég var að velta því fyrir mér, að eftir því sem mér skilst, þá eru höft á því hvað fólk fær mikinn gjaldeyrir þegar það ferðast erlendis, auk þess sem fólk þarf að sýna farseðil sem sönnun þess að það sé að fara erlendis. En skyldi þetta hafa gilt hvað Guðna fv. formann framsóknarflokksins sem og Björgvin G. S. ? hvað þá aðra aðila alþingis sem farið hafa út síðan bankakreppan skall á. Ég er bara að velta þessu fyrir mér. Og hvort enn sé við líði núna í kreppuni þetta um Jón og sr. Jón ? Woundering


Enn ein rjúpnaskyttan í rugli !

Ég var búin að blogga um þessar blessaðar rjúpnaskyttur fyrir nokkru, og enn er sama sagan að endurtaka sig. Ef þessir menn vilja vera að klöngrast um fjöll og firnindi án þess þó að hafa í raun nokkra hugmynd um hvert þeir eru að fara eða hvar þeir eru eru staðsettir á hinum og þessum tíma, þá held ég að það sé löngu tímabært að þeir sem fái veiðileyfi til skotveiða að þeir sýni fram á að þeir hafi og eigi GPS staðsetningartæki. Að öðrum kosti eiga þessir menn ekki að fá veiðileyfi. Rekstur björgunarsveita er nógu dýr og erfitt oft að fá fjármagn til rekstursins, svo þeir séu nú ekki sífellt að leita að algerum veiðimansaulum. Semsagt að þeir sem fá veiðileyfi, verða að sýna fram á eign á GPS tæki. Og þeir sem ekki hafa það meðferðis til veiða eiga skylirðislaust að greiða kostnaðinn við leitina að þeim. Fyrr læra þessir menn ekki.
mbl.is Leit að rjúpnaskyttu á Vestfjörðum í gærkvöldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fallið verði frá kröfu um upplýsingagjöf !?

Hvað hefur Jón Ásgeir að fela sem og aðrir útrásarvíkingar sem hafa farið svo illa með almenna fé, og komið öllu í kalda kol. Ekki láta það eftir þeim og birtið allar upplýsingar um þessa vesalinga. Þeir hafa fyrirgert rétti sínum um að vera í felum með fjármál sín.
mbl.is Fallið verði frá kröfu um upplýsingagjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lilja Rut.

n691700793_1143240_8118

Lilja Rut

Það er búið að vera svo mikið að vera í kring um prinssessuna InLove mína, að ég gleymdi bara að segja frá því hvaða nafni hún var skírð. En eins og sést í fyrirsögninni þá var hún skírð Lilja RutHeart, nafn sem er fengið frá Guði einum Smile, en ekki í höfuðið á einhverjum úr fjölskyldunum, Sama gerði ég þegar mínir strákar voru skírðir. Tel slíkt fyrirkomulag best. Allt of margir heita sömu nöfnum í svo mörgum fjölskyldum að oft veit maður ekki hvern er verið að tala um og hvái þá bara og þarf að spyrja um hvern sé verið að tala um Undecided. Takk að sinni og njótið helgarinnar.

Ég er orðin afi :)

Jæja kæru blogg vinir, ég er orðin afi loksins. Það fæddist lítil heilbrigð og falleg dama kl. 00.29 eftir miðnættið í nótt, 16 merkur og 51 cm. Algert krútt. Mitt fyrsta afabarn InLove . Hún var svo róleg og skýr, horfði bara á þetta fólk sem í kringum hana var, og hefur sjálfsagt haldið að hún væri komin í geggjaða veröld, eins og við létum nú í kringum hana. Lét það nú samt ekkert á sig fá. Gæti trúað að hún hafi bara viljað fara í holuna sína hlýju aftur Woundering . Jæja ég verð nú að fara að kaupa skírnargjöf, því daman verður skírð uppi á spítala í dag. Heart InLove Heart

Ég verð afi í nótt :)

Eldri sonur minn hringdi rétt áðan og sagði mér að hann og unnusta hans væru komin upp á fæðingardeild. 6 cm útvíkkun og 5 mín milli verkja, svo ég vona að ég eignist mitt fyrsta barnabarn í nótt eða um morgunsárið Smile. ÉG ER AÐ VERÐA AFI Happy. Svo glaður með það. Ég að verða afi, búin að bíða lengi eftir því. Tralla tralla lei.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband