Anal eða ekki anal

Það er spurningin...henni er þó auðvelt að svara. Steingrímur J. tók hreint út sagt alla þá sem kusu VG í síðustu kosningum algerlega í rassgatið með því að segja JÁ við aðildarumsókn inn í ESB...þrátt fyrir að hafa sagt, svarið fyrir... og krossað sig í bak og fyrir að...aðild hvað þá að hugsun um að sækja um ESB aðild kæmi aldrei til greina. Þetta var sagt í aðdraganda síðustu kosninga. En með JÁ  svari sínu núna steig hann fyrsta skrefið í að koma Íslandi algerlega á ískaldan klakann...nógu kalt var og er nú þegar hér á landi. Mín spá er að fylgi VG á eftir að hrynja svo um munar fyrir næstu kosningar. Og Jóhanna hin góða sem ég hef nú ávalt haldið svo mikið uppá...þrátt fyrir að ég hafi ekki verið fylgismaður flokks hennar...hún hefur svo sannarlega skotið sig í fótinn núna...ef ekki báða fætur. Hennar tími kom...en hefur fjarað út svo hratt að varla auga á festi. Ég spái því að hvorugt þeirra komi til með að verða í valdastöðum innan síns flokks...þegar til næstu kosninga kemur...svo illa hafa þau staðið að málum nú. Guð blessi Ísland.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband