Er hætta á faraldri á Íslandi ?

504415A

 Svínaflensa staðfest hjá 63 einstaklingum

Samkvæmt upplýsingum frá sóttvarnarlækni hefur staðfestum tilfellum nýrrar inflúensu A(H1N1) fjölgað um níu á síðustu tveimur sólarhringum. Staðfest er að 63 einstaklingar á Íslandi eru nú með svínaflensuna svonefndu. Ekki er vitað um nein alvarleg veikindi af völdum nýju inflúensunnar hér á landi.

Ef við gefum okkur meðaltalið 4 á dag þá eiga tilfellum eftir að fjölga í 444 til áramóta +

þessa 63 sem þegar hafa greinst með H1N1 flensuna...það gera þá samtals 507 einstaklingar.

Ef svo margir smitast...má ætla samkvæmt tölfræðinni að 1 eða fleiri muni deyja úr H1N1 hér á landi í kjölfarið...

Og því miður virðist þessi flensa leggjast harðast á aldursbilið 5 -27 ára...hina nýju kynslóð.

Vona bara að aukningin á smiti verði ekki meiri en talið er upp hér að ofan....

en það er með faraldra eins og margt annað að það virðist sækja í sig veðrið eftir því sem lengri tíma tekur að hemja slík smit...og gjarnan stökkbreytast í eitthvað verra.

Vonum bara að örugg lyf finnist við þessarri H1N1 flensu áður en hún umbreytist til hins verra.


mbl.is Svínaflensa staðfest hjá 63
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi flensa ásamt gjaldþroti íslands og jarðskjálftum undanfarið, þetta er hefnd Gudda segja þeir á Omega.... eina leiðin til að redda þessu er að dýrka gudda... sem og að styðja umboðsmenn hans með fjárframlögum.

Þannig var það nú vinur minn.

DoctorE (IP-tala skráð) 6.8.2009 kl. 14:20

2 Smámynd: brahim

Held að þetta hafi ekkert með Guð (Gudda) að gera. Hallast fremur að þeirri kenningu að einhverjar tilraunir hafi verið gerðar og H1N1 hafi sloppið þaðan.

brahim, 6.8.2009 kl. 14:33

3 identicon

Myndi aldrei láta sprauta mig með einhverju áhættu bóluefni. Líkaminn sér um að lækna flensur sjálfur, sé maður sæmilega hraustur.

Dísa (IP-tala skráð) 6.8.2009 kl. 15:52

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta er bara árleg flensa sem kemur og fer rétt eins og allar hinar. Einhverjir virðast hafa hag af því að skapa og ala á ótta hjá fólki.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.8.2009 kl. 15:55

5 Smámynd: brahim

Sammála þér Dísa...hef aldrei látið sprauta einhverju bóluefni í mig...

læt ónæmiskerfið um þetta...það hefur hingað til verið í ágætu lagi.

brahim, 6.8.2009 kl. 16:04

6 Smámynd: brahim

Jah Axel...það skyldi þó aldrei vera að sú væri raunin...er efins þó.

brahim, 6.8.2009 kl. 16:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband