Barnshafandi dópsmyglari

Mynd 447351

Er þetta ekki þriðji Litháinn sem handtekin er á einni viku fyrir fíkniefnasmygl í niðursuðudósum. Og einn með efnin innvortis.

Spurningin er hve margir hafa ekki verið nappaðir við þessa iðju sína ? og því komið þessum efnum inn í landið.

Og að þessir glæpamenn skuli nota þungaða konu til þessa verknaðar er viðurstyggileg. Og sýnir þeirra skítlega eðli á einstaklega óviðfelldin hátt.

Nú eru framsalssamningar milli Íslands og Litháen...svo því í ósköpunum er þetta fólk ekki sent til afplánunar í sínu heimalandi, í stað þess að setja þá inn í Lúxusfangelsin á Íslandi eins og þeir líta svo á að þau séu.

Og svo hlær þetta fólk bara að Íslenskum yfirvöldum sem og lögreglunni...Þannig að hvenær ætla yfirvöld að opna augun og átta sig að þau eru orðin að athlægi í augum þessara glæpamanna frá Litháen og Póllandi.

Linkindin gagnvart þessu fólki er með ólíkindum...og alt virðist vera svo flókið þegar kemur að því að koma þessu fólki úr landi.

Ekki er þetta svona flókið að því að virðist í öðrum löndum...og allra síst í Danmörku þar sem sá handtekni er dæmdur og sendur úr landi fyrir fullt og alt á einum sólarhring.

Er svona afskaplega erfitt að setja svipuð lög og Danir gerðu fyrir rúmu ári síðan ?

Eða eru þetta gersamlega ónothæft fólk á Alþingi Íslendinga sem sér ekki hvernig vandinn fer versnandi með hverjum mánuðinum sem líður.

Og með hverjum sakamanni sem er sýnd þessi linkind sem gert er hér á landi...því erfiðara verður að taka á málunum...því framtíðar sakamenn geta þá bent á fordæmin sem á undan eru gengin.


mbl.is Barnshafandi í gæsluvarðhaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband