fös. 4.9.2009
Loksins var ég útilokaður af honum Villa.
Jæja þá kom að því að hann Vilhjálmur sem er svo elskur að gyðingum en illa við múslíma útilokaði mig frá bloggi sýnu...Það þurfti nú ekki mikið né mörg comment til að hann gerði það...En ég er nú ekki sá fyrsti né sá síðasti sem útilokaður er frá bloggsíðu hans.
Enda er honum meinilla við þá sem ekki eru sammála honum í skoðunum, og hreinlega voga sér að gagnrýna hans skrif...og þetta vita flestir bloggarar hér að ég tel. Villi vill bara já fólk á sína síðu.
Því er það mér sem og svo mörgum öðru hér á blogginu alveg hulin ráðgáta afhverju honum er hampað svona mikið af stjórnendum bloggsins. Það hafa einnig aðrir bloggarar gagnrýnt það sama í bloggum sínum
Hann hefur verið uppvís að því að fara á svig (margoft) við sannleikan hvað Gyðinga og Palestínumenn varðar, og á Það hefur verið bent af öðrum bloggurum hér á mbl.is.
Mönnum hafa verið hent hér út fyrir minni sakir en að fara á svig við sannleikann í ýmsum málum...man í augnablikinu best eftir bloggara sem kallaði sig gumson...sá bloggari virtist ekki ganga heill til skógar eins og það er stundum orðað.
Hann setti inn vita meinlaus comment, 1 orð eða setningu hér og þar á bloggsíður annarra...og margar kannski ekki neitt í samræmi við það sem skrifa var um. En sauðmeinlaust þó, og er þeim til skammar sem kvörtuðu undan því og fengu hann því settan út af sakramentinu í því framhaldi.
En að Villa aftur. þrátt fyrir þessi svig hans við sannleikann sem og skítkast á aðra bloggara, sem og þá áráttu hjá honum að vera sífellt að snúa út úr nöfnum fólks og þar með gera gys að þeim. Get t.d. nefnt sjalfbodaaron.blog.is sem Villi reindi að hrauna yfir og vera með skítkast gegn...
það var greinlega talið í lagi af hálfu Árna og félaga. Og því komst hann og kemst enn upp með það af hálfu stjórnenda bloggsins hér á mbl. Veit ekki hvort Árni Matt og Villi séu svona miklir vinir eða að skoðanir Vilhjálms og eigenda Mbl.is séu samhljóma ? Ég hreinlega veit það ekki. En það er greinilegt að það er ekki sama Jón eða séra Jón hjá Árna Matt og co.
Kæmi mér ekki á óvart ef að ég yrði settur út af sacramenntinu hér fyrir þennan pistil þó að saklaus sé. Maður vissi þó hver stæði fyrir því og myndi þar með sanna mitt mál. Set inn hér mynd sem sýnir hversu mikinn hluta Ísraelsmenn hafa hertekið af landi Palestínumanna. Sem Villa finnst bara vera í góðu lagi...enda um Guðs útvalda þjóð að ræða.
Hér linkur á sjalfbodaaron þar sem vel sést hverskonar mann Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson hefur að bera...ekki bara ræðst hann á Aron sjálfan sem og skrif hans heldur Móður hans einnig. http://sjalfbodaaron.blog.is/blog/sjalfbodaaron/entry/680620/#comments
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
fös. 4.9.2009
Ljóða getraun.
Spurningarnar eru, hvað heitir ljóðið, hver samdi ? og í hvaða tilefni ?
Þú ert eins og fugl,
sem flýgur um loftin blá.
Þú ert eins og ugla,
sem vakir um nætur.
Þú ert eins og blóm,
sem blómstrar á vorin.
Þú ert eins og bíll,
sem brunar um götur.
Þú ert eins og andlit,
sem brosir svo blítt.
Þú ert eins og mús,
sem tístir um nætur.
Þú ert eins og sól,
sem skín svo glatt.
Þú ert eins og fjóla,
sem lyktar svo vel.
Þú ert eins og ljóð,
sem hljómar svo vel.
Reyndar hljómar fluttningur þessa ljóðs mjög vel...þar að segja þegar sá sem kann að fara með ljóð les það upphátt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
fim. 3.9.2009
Matur og drykkur í sömu dós...yummí
Hvað er maðurinn að kvarta...það er ekki á hverjum degi sem maður fær fría og vel marineraða máltíð og gos með í einni Pepsí dós.
Legg til að afgangs grísir og sjálfdauðar hænur verði settar í allar Pepsí dósir hér heima.
Sé fyrir mér auglýsinguna...Pepsí og Snakk...2 fyrir 1 í sömu dós
Froskaleifar í Pepsi-dós | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 5.9.2009 kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þri. 1.9.2009
Ó"verðskulduð verðlaun"
Vigdís hafði eina merkilega staðreynd sér til stuðnings í upphafi. Hún var fyrsta kona veraldar, sem kjörin var þjóðhöfðingi í lýðræðislegri kosningu...Tel að þess vegna sé hún að fá þessi sem og önnur verðlaun sem hún hefur fengið...Ekki vegna þess hve hún hafi í forsetatíð sinni eða eftir hana verið ötul í að auglýsa Ísland sem land tækifæra fyrir erlend fyrirtæki né annað sem gagnaðist Íslendingum t.d. fjárhagslegra-viðskiptalegra tækifæra. Nei sama tuggan kom og kemur út úr henni alla tíð sem minnir mann á persónu frá því um 1900.
(Ólafur Ragnar og Dorrit hefðu mun frekar átt að fá þessi verðlaun, enda ætíð veri ötul í að kynna Ísland og Íslendinga sem og þau tækifæri sem erlendum fyrirtækjum er í boði hér.)
Vigdís átti þátt í að bjarga einhverju gömlu pakkhúsi við Kristjánshöfn í Kaupmannahöfn.
Vigdís hefur ekki setið auðum höndum eftir að hún lét af embætti forseta. Hún hefur unnið ötullega að því að styrkja tungumál, rannsóknir og menningu, heima fyrir og á alþjóðavettvangi
(með því að ljá nafn sitt við það.) "svaka merkilegt" (og nota bene hún var ekki upphafsmaður að þeim rannsóknum)
Hún hefur ljáð mörgu verkefninu lið og þær eru ótaldar bækurnar sem hún hefur ritað inngangsorð í, og ræður sem hún hefur flutt á ráðstefnum, sýningum og öðrum viðburðum úti um allan heim. (Hvað skyldi hún hafa fengið greitt fyrir það)
Styrktarsjóður ber nafn hennar...en hún stofnaði hann ekki...heldur leyfði notkun á nafni sínu.
Árið 1998 var Vigdísi falið að vera velgjörðarsendiherra tungumála hjá menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO).
(hvað gagnast það Íslendingum ? Snobbstaða og ekkert annað)
Helstu hugðarefni Vigdísar í embætti forseta Íslands snéru að ræktun lýðs, lands og tungu sem hún sagði að væru og yrðu samtvinnuð heild. Vigdís minnti oft á að tungan og orðið væru dýrmæt eign þjóðarinnar og hornsteinn menningarinnar:
Sama gamla tuggan sem hún fór með öll hennar ár sem forseti Íslands, sem og eftir þá setu hennar...Minnti mig alltaf á afgamla sveitakerlingu úr einhverjum afdalnum sem hefði aldrei lært að segja neitt nema fyrirfram lærðar setningar.
Orðin eru kastalar okkar Íslendinga. Í fámenni og fátækt týndum við aldrei manndómi okkar. Við gleymdum aldrei að setja í orð hinn eina varanlega efnivið sem við eigum allan hag okkar og alla hugsun. Einmitt þess vegna hefur okkur reynst svo létt verk að skapa okkur fjölskrúðuga nútímamenningu.
Enn sama afdalakerlingin með gamaldags og fyrirfram lærðar setningar.
Hvar sem Vigdís fór vakti hún athygli á Íslandi, tungunni, náttúrunni og sögu þjóðar sinnar. Hún hefur einatt lagt áherslu á mikilvægi þess að þeir sem stunda alþjóðaviðskipti kynnu erlend tungumál vel. Þekking á tungumáli og menningu viðsemjanda væri grunnur að skilningi á menningu hans og þar með undirstaða velgengni í viðskiptum og öðrum samskiptum.
Hversu margir af þeim skyldu hafa í raun haft nokkurn áhuga á að læra um gamla Íslenska sveitamenningu og heimóttahátt Íslendinga ? hvað þá tungumál okkar sem gagnast hvergi nema hér á þessu skeri.
Í fyrstu innsetningarræðu Vigdísar fjallaði hún um þýðingu íslenskrar tungu fyrir þjóðina.
Við erum oft á það minnt, að það er íslensk tunga, sem öðru fremur gerir okkur að Íslendingum. Tungan geymir sjóð minninganna, hún ljær okkur orðin um vonir okkar og drauma. Hún er hið raunverulega sameiningartákn okkar og sameiningarafl. En íslensk tunga gerir okkur ekki bara að Íslendingum; hún gerir okkur að mönnum. Hún gerir okkur að heimsþegnum, sem ber skylda til að leggja sem mestan skerf til stöðugra framfara mannsandans.
Jáhá heimsþegnum sem engin skilur nema við tölum aðra tungu en okkar eigin sem engin skilur...mann langar til að gubba yfir þessum talanda hennar sem og hennar sömu gömlu klisjum sem sífellt voru og eru á hennar vörum.
Land, þjóð og tunga, þrenning sönn og ein,
þér var ég gefinn barn á móðurkné;
ég lék hjá þér við læk og blóm og stein,
þú leiddir mig í orðs þíns háu vé.
(Hér er restin af ljóðinu sem Vigdís notaði ekki í ræðu sinni)
Á dimmum vegi dýrð þín um mig skein,
í dögun þeirri er líkn og stormahlé
og sókn og vaka: eining hörð og hrein,
þú heimtar trúnað, spyr hver efnd mín sé.
Þú átt mig, ég er aðeins til í þér.
Örlagastundin nálgast grimm og köld;
hiki ég þá og bregðist bý ég mér
bann þitt og útlegð fram á hinzta kvöld.
Ísland, í lyftum heitum höndum ver
ég heiður þinn og líf gegn trylltri öld.
Snorri Hjartarson 1952
Maður og land, maður og tunga, maður og minningar um land og sögu, skráðar
á eina tungu. Það er fjöregg sem Íslendingum hefur verið falið að varðveita og gefur
oss þjóðerni, frjálsri þjóð í frjálsu landi meðal virtra þjóða heims.
En fjöregg eru brothætt og þjóðernisvitund landsmanna ætti einatt að vera
vakandi fyrir því sem gæti brotnað og týnst ef ekki er farið með gát. Enda þótt landið sé gjöfult og gott er það svo afar auðsært, að ganga verður varlega um það í hverju
fótmáli. Því léttar sem stigið er til jarðar, því fegnara og þakklátara er þetta land, sem í
senn eru eign vor og eigandi, og á engan betri að en vin sinn, þjóð sína til að græða
sárin, þegar hinir fornu féndur hafa farið um eldur, ís eða snarpir vindar.
Sérhver dagur sem vér lifum er boðberi nýrra tíma. Smáþjóð hér
norður í höfum verður stöðugt að taka afstöðu til allra nýjunga heimsbyggðarinnar
svo og til þeirra nýjunga sem hugvitsmenn þjóðarinnar færa henni og þá jafnframt
heimsbyggðinni. Ekkert í heiminum er eins og í dag og það var í gær. Allir menn
hljóta á líðandi stundu að hugsa í ljósi þess sem var í gær. Á hverjum degi verður og
að undirbúa morgundaginn og framtíðina til lengri tíma.
Nenni ekki að setja inn fleiri orð og setningar hennar sem minna mann á persónu frá því um aldamótin 1900. Enda sama klisjan sí og æ hjá henni. Vona að hún njóti verðlauna sinna...sem að mínu mati eru ó"verðskulduð".
Ólafur Ragnar og Dorrit eiga mun betur skilið þessi verðlaun enda verið ötulir sendiboðar Íslands og Íslendinga um hvað við höfum upp á að bjóða öðrum hér á Íslandi sem og á erlendum vettvangi.
Þrátt fyrir þau mistök að mæra Útrásarvíkingana á sínum tíma á hann heiður skilið sem og Dorrit forsetafrú. En þau hafa gert mun meira fyrir Ísland en Vigdís gerði nokkurn tímann. Og þau hafa fært Ísland meir á kortið en nokkrir aðrir á undan þeim. Ísland er stórasta land í heimi...eins og Dorrit orðaði það svo skemmtilega.
Þetta er mín skoðun en ekki endilega ykkar.
Vigdís fær Eldmóðsverðlaun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 4.9.2009 kl. 23:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
mán. 31.8.2009
Af hverju....
í ósköpunum setur Alþingi Íslendinga ekki slík lög sem Danir settu á hjá sér...og er á þá vegu að innflytjandi sem gerist brotlegur við lög hvort sem um er að ræða íbúa frá ESB landi eða ekki...og þar er ekki verið að tala bara um þá sem koma til að vinna...heldur einnig þá sem þegar hafa öðlast Danskt ríkisfang.
Þeir eru handteknir...dæmdir...og sendir úr landi, og allt skeður þetta á einum sólarhring hjá frændum vorum. Ævilangt komubann fylgir með í kaupbætir.
Það er ekkert verið að púkka upp á þessa lögbrjóta hjá Dönum í 30+ daga varðhald eins og hér er gert og reka þá síðan úr landi...eða einfaldlega sleppa þeim lausum aftur svo þeir geti haldið áfram fyrri iðju sinni...nei rakleiðis úr landi, veskú takk
Held að Alþingismenn ættu að vakna í þessum efnum...og þó fyrr hefði verið.
Og byrjum á á Pólverjum og Litháum...það hefur sýnt sig að þaðan koma flestir þessara krimma.
BURT MEÐ ÞETTA PAKK....
Nóg að við höfum þá Íslensku.
Vaxandi samfélagsógn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
sun. 23.8.2009
Neyðarnúmerið 112, til hvers er það?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)